Fimleikadeild Selfoss og Íslandsbanki á Selfossi hafa endurnýjað samning sinn um að bankinn verði aðalstyrktaraðili fimleikadeildarinnar.
Samningurinn hefur verið virkur í nokkur ár og er það deildinni afar mikilvægt að hafa trausta bakhjarla sem styðja fjárhagslega við starfsemina. Íþróttafélög þurfa öll á góðum stuðningi að halda og er fimleikadeild Selfoss mjög ánægð með þann góða stuðning sem Íslandsbanki veitir deildinni árlega.