![Þórey Hekla sigraði söngkeppni NFSu 2018 Þórey Hekla sigraði söngkeppni NFSu 2018](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/taktuflugid2.jpg?fit=768%2C582&ssl=1)
Þórey Hekla Ægisdóttir sigraði söngkeppni NFSu 2018, en keppnin fór fram síðastliðinn fimmtudag. Þórey Hekla söng lagið „It’s a man’s world“. Í öðru sæti varð Gígja Marín Þorsteinsdóttir með lagið „Turning tables“ og í þriðja sæti varð Kolbrún Katla Jónsdóttir með lagið „I have nothing“. Alls tóku tíu atriði þátt í keppninni að þessu sinni.
Sérstök verðlaun voru veitt fyrir sviðsframkomu og flott atriði. Þau verðlaun hlaut Hermann Snorri Hoffritz með flutningi á frumsömdu lagi.
Keppnin var glæsileg að venju, en þetta er langstærsti viðburður á vegum Nemendafélags FSu á hverri haustönn. Þema kvöldsins var „Taktu flugið“ og var íþróttahúsið skreytt hátt og lágt í samræmi við það.