![Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna bruna Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna bruna](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/lögregla.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að Héraðsdómur Suðurlands hafi í morgun úrskurðað að karlmaður fæddur 1965 skuli, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, sæta gæsluvarðhaldi allt til kl. 16:00 þann 29. nóvember n.k. Krafan byggir á ákvæðum 2. mgr. 95. gr. sakamálalaga nr. 88/2008
Kona sem einnig sætti gæsluvarðhaldi vegna sama máls er nú í skýrslutöku hjá lögreglu. Þá kemur fram að ekki verði að vænta frekari frétta frá lögreglu af rannsókninni að sinni.