![Ársfundur um náttúruvernd og friðlýsingar haldinn í Hrunamannahreppi Ársfundur um náttúruvernd og friðlýsingar haldinn í Hrunamannahreppi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/08/Umhverfismál-heimilanna.jpg?fit=768%2C576&ssl=1)
Ársfundur Umhverfisstofnunar, náttúruverndarnefnda sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa verður haldinn í Félagsheimili Hrunamanna á fimmtudag. Yfirskrift fundarins er: „Hlutverk náttúruverndarnefnda og sveitarfélaga – friðlýsingarvinnan framundan“. Dagskráin er fjölbreytt en meðal mælenda er Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra sem mun kynna stefnu stjórnvalda um friðlýsingar. Að fundi loknum verður fundargestum boðið í skoðunarferð. Farið verður að „Seyrustöðum“ þar sem unnin er seyra og hún gerð tilbúin til landgræðslu. Þá verður farið að Kópsvatnsvirkjun þar sem skoðuð verður lághitavirkjun.