Dagana 17.–20. október sl. fór Evrópumótið í hópfimleikum fram í Portúgal. Ísland sendi fjögur landslið til leiks. Liðin náðu öll frábærum árangri og komust öll upp úr undanúrslitunum, sem voru haldin á miðvikudag og fimmtudag. Á föstudeginum og laugardeginum fóru úrslitin fram, þar sem sex lið kepptu um Evrópumeistaratitil.
Kvennalið Íslands varð í 2. sæti, blandað lið fullorðinna landaði 3. sæti, stúlknaliðið tók 2. sæti og blandað lið unglinga náði 4. sæti. Virkilega góð frammistaða.
Fimleikafólk sem á rætur að rekja til fimleikadeildar Selfoss lagði sitt af mörkum á þessu móti. Birta Sif Sævarsdóttir sem æfir með 1. flokki á Selfossi keppti með blönduðu liði unglinga og átti gott mót. Tanja Birgisdóttir, sem þjálfar Birtu Sif, var landsliðsþjálfari í þessu verkefni og þjálfaði blandað lið fullorðinna. Í blönduðu liði fullorðinna voru tveir keppendur sem æfðu lengi vel á Selfossi, þau Eysteinn Máni Oddsson og Anna María Steingrímsdóttir. Þau æfa nú bæði með félagsliðum á höfuðborgarsvæðinu. Einnig keppti Margrét Lúðvígsdóttir með kvennaliðinu, en hún æfði lengst af með fimleikadeild Selfoss og er í dag þjálfari hjá deildinni. Hekla Björt Birkisdóttir úr Hveragerði keppti með stúlknalandsliðinu á mótinu, en hún æfði einnig á Selfossi um tíma. Þá var Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri fimleikadeildar Selfoss, einnig á mótinu að sinna störfum fyrir Fimleikasamband Íslands og Olga Bjarnadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri deildarinnar, að sinna störfum dómara.