![Einar Kárason rithöfundur heimsótti nemendur í 10. bekk Sunnulækjarskóla Einar Kárason rithöfundur heimsótti nemendur í 10. bekk Sunnulækjarskóla](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/einarkara_sunno2.jpg?fit=768%2C540&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/11/einarkara_sunno1.jpg?resize=280%2C300&ssl=1)
Einar Kárason, rithöfundur kom í heimsókn til nemenda í 10. bekk Sunnulækjarskóla á Selfossi fyrir skömmu. Einar skrifaði m.a. bókina „Djöflaeyjan“ sem nemendur eru að lesa þessa dagana. Hann sagði frá tilurð sögunnar, af hverju áhugi hans kviknaði á þessu efni og hvernig bókin varð til. Einnig ræddi hann einstaka persónur í sögunni og hvernig margar þeirra eiga sér lifandi fyrirmynd í raunveruleikanum.
Einar sagði nemendum einnig aðeins frá sjálfum sér, uppvaxtarárum sínum í Reykjavík en einnig aðeins frá lífi sínu sem rithöfundur. Nemendur voru mjög áhugasamir og heimsókn Einars mun sannarlega hjálpa þeim við lestur bókarinnar.