Mánudaginn 15. október sl. komu fulltrúar frá Rafiðnaðarsambandinu og Samtökum rafverktaka færandi hendi í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Samtökin gáfu 22 nemendum sem eru í grunnnámi rafiðna og rafvirkjun, nýjar glæsilegar spjaldtölvur svo að þeir geti nýtt Rafbókina, aðalnámsefnið í rafiðnum í námi sínu. Mikil ánægja var meðal nemenda og kennara brautarinnar með þessa glæsilegu gjöf.
Gáfu nemendum í FSu 22 spjaldtölvur
![spjaldtolvur_fsu](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/10/spjaldtolvur_fsu.jpg?resize=1000%2C750&ssl=1)