![Umferðarslys á gatnamótum Þorlákshafnarvegar og Þrengslavegar Umferðarslys á gatnamótum Þorlákshafnarvegar og Þrengslavegar](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/Lögregla.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að umferðarslys hafi orðið á gatnamótum Þorlákshafnarvegar og Þrengslavegar. „Þarna varð árekstur tveggja bifreiða með þeim afleiðingum að einn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild í Fossvogi. Þrír aðrir hlutu einhver meiðsl. Unnið er á vettvangi og eru vegfarendur beðnir að taka tillit til þess. Umferð er hleypt fram hjá vettvangi eins og hægt er“, segir í tilkynningunni.
Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.