Á síðasta stjórnarfundi SASS, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sem haldinn var 18. september sl., var tekin fyrir skýrsla starfshóps velferðarráðuneytisins sem gefin var út í ágúst sl. Í skýrslunni voru teknir fyrir möguleikar á aukinni aðkomu þyrlna að sjúkraflugi.
Stjórn SASS tekur undir sjónarmið tveggja af sjö fulltrúum í starfshópnum um að leggja til við heilbrigðisráðherra að sérstakri sjúkraþyrlu verði komið á fót, með stuttum útkallstíma (<10 mínútur) og sérhæfðum mannskap (lækni og hjúkrunarfræðingi/bráðatækni).
Áætlaður kostnaður er á bilinu 500 til 880 milljónir á ári eftir því hvaða þyrla yrði valin til verkefnisins og hvort einn eða tveir flugmenn yrðu í áhöfn.
Stjórn SASS leggur jafnframt til að þyrlan verði staðsett á Suðurlandi. Þá áréttar stjórnin nauðsyn þess að sem fyrst verði farið í tilraunaverkefni þar sem þyrlur verði notaðar í sjúkraflug.