![Hvassviðri í kortunum, snarpur vindur undir Eyjafjöllum á morgun Hvassviðri í kortunum, snarpur vindur undir Eyjafjöllum á morgun](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/10/Screen-shot-2018-10-02-at-08.50.40.png?fit=749%2C511&ssl=1)
Í veðurspá frá Veðurstofu Íslands er spáð hvassviðri eða storm, 15 -25 m/s. Hvassast syðst; í Vestmannaeyjum og undir Eyjafjöllum. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s, einkum undir Eyjafjöllum. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjón.