Mánudaginn 1. október kl. 19 verður Diskósúpufundur um atvinnu- og umhverfismál í Þingborg í Flóahreppi. Fundargestum verður boðið verður upp á svokallaða Diskósúpu.
Efni fundarins er spennandi, en á dagskránni er:
- Kynning á Reko hugmyndinni. Nýtt form á sölu og dreifingu matvæla frá smáframleiðendum beint til neytenda með aðstoð samfélagsmiðla.
- Kynning á Uppbyggingasjóði Suðurlands. Ertu með frábæra hugmynd? Sendu inn umsókn.
- Umhverfis Suðurland – Sunnlenskt átak í umhverfismálum. Í október er umfjöllunarefnið matarsóun og er Diskósúpan liður í því.
- Almennt spjall um atvinnu- og umhverfismál ef tími leyfir.