![Byggðarráð Rangárþings ytra segir upp samningi við VÍS Byggðarráð Rangárþings ytra segir upp samningi við VÍS](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/09/hella-1.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Á fundi Byggðaráðs Rangárþings voru lögð fram gögn um tryggingamál sveitarfélagsins. Núverandi samningur sveitarfélagsins við VÍS endurnýjast við næstu áramót ef honum er ekki sagt upp fyrir þann tíma, segir í fundargerðinni. Gerð var tillaga um að segja núverandi samningi sveitarfélagsins við VÍS upp miðað við næstu áramót og leita tilboða í tryggingar sveitarfélagsins. Tillagan var samþykkt samhljóma.