![Niðurstaðan bindandi fyrir bæjarstjórn Niðurstaðan bindandi fyrir bæjarstjórn](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/05/helgi_s_haraldsson2.jpg?fit=768%2C563&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/05/helgi_s_haraldsson1.jpg?resize=242%2C300&ssl=1)
Helgi S. Haraldsson, forseti bæjarstjórnar Árborgar, var spurður hvaða þýðingu niðurstöður íbúakosninganna síðastliðinn laugardagum um miðbæjarskipulagið hafi fyrir bæjarstjórn Árborgar.
„Kosningaþátttaka var tæp 55% og því er niðurstaða kosningarinnar bindandi fyrir bæjarstjórn sem hafði gefið út 29% viðmiðið sem lágmark til að um bindandi niðurstöðu yrði að ræða. Niðurstaða er því sú að aðalskipulag og deiliskipulag hefur verið samþykkt í íbúakosningu. Nýtt skipulag verður sent til Skipulagsstofnunar til staðfestingar og í framhaldi af því getur Sigtún þróunarfélag hafið hönnun og byrjað framkvæmdir.“
Helgi kvaðst ánægðastur með þátttöku í kosningunni og sagði að það sýni að íbúarnir séu tilbúnir að taka við þeirri áskorun sem íbúakosning er með því að mæta og taka þátt og að 55% þátttaka sé gott dæmi um það. Niðurstaðan sé því afgerandi og sýni vilja íbúanna.