![Óskað eftir vitnum að líkamsárás á Flúðum Óskað eftir vitnum að líkamsárás á Flúðum](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað mánudaginn 6. ágúst síðasliðinn um klukkan 01:40. Þar veittist hópur manna að tveimur karlmönnum. Árásin átti sér stað fyrir utan aðalinnganginn að Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.
Sími lögreglunnar á Suðurlandi er 444 2000. Einnig er hægt að hafa samband í gegnum netfangið sudurland@logreglan.is.