2.3 C
Selfoss
Home Fréttir Hvað ef skipulagi miðbæjar Selfoss verður hafnað?

Hvað ef skipulagi miðbæjar Selfoss verður hafnað?

0
Hvað ef skipulagi miðbæjar Selfoss verður hafnað?
Ásta Stefánsdóttir.

Í viðtali við formann bæjarráðs Árborgar, Eggert Val Guðmundsson, S-lista, sem birtist á sjónvarpsstöðinni Hringbraut kom fram að ef íbúar hafna aðal- og deiliskipulagi miðbæjar Selfoss, sem samþykkt var af bæjarstjórn í febrúar sl., muni sveitarfélagið ráðast í gatnagerð og úthluta lóðum á svæðinu. Unnið verði eftir því deiliskipulagi sem nú er í gildi.

Gildandi deiliskiplag inniheldur, á því svæði sem liggur á milli Tryggvatorgs og Sigtúnsgarðs, tvær lóðir með sitthvorn byggingarreitinn. Á milli þeirra er gert ráð fyrir bæjartorgi og bílakjallara undir því, utan lóða en á (og undir) opnu svæði. Auk þessa er ein lóð við Kirkjuveg. Gatnagerðargjöld sem kæmu inn fyrir umrædda þrjá byggingarreiti, um 105 mkr., duga ekki til að standa undir kostnaði við gatnagerð, frágang torgs og gerð bílakjallara, sem er eins og áður segir utan lóða og kemur því í hlut sveitarfélagsins að gera. Skipulagið geri að auki ráð fyrir að spennistöð sem nú er rétt við Pakkhúsið verði færð. Kostnaðurinn af því mun lenda á framkvæmdaaðila, í þessu tilviki sveitarfélaginu.

Þessu til viðbótar er ósamið við aðra lóðarhafa sem eiga réttindi á þessu svæði um að þeirra lóðir verði teknar, að hluta a.m.k., undir opin svæði og bílakjallara. Aðkoman að bílakjallaranum liggur í gegnum byggingu sem þegar stendur á svæðinu og í gegnum lóð annars einkaaðila. Sveitarfélagið hefur því ekki umráð yfir öllu því landi sem framkvæma þyrfti á.

Kostnaðinn, umfram tekjur af gatnagerðargjöldum, sem hlýst af því að fara þá leið sem formaður bæjarráðs, Eggert Valur, leggur til munu engir aðrir greiða en íbúar sveitarfélagsins. Ljóst er að það verður um umtalsverðar fjárhæðir að ræða, bílakjallarar eru t.d. ekki ódýrir í byggingu, 75 stæði neðanjarðar kosta ekki undir 300 mkr. Vilja íbúar að útsvari þeirra sé varið með þessum hætti, þegar hægt er að fara aðra leið þar sem framkvæmdaaðilar bera allan kostnað og taka þar með alla áhættu af verkefninu? Vilja íbúar leggja útsvarið sitt í að byggja bílakjallara sem nýtist fyrst og fremst tveimur byggingum á miðbæjarsvæðinu?

Gildandi skipulag Deiliskipulag – Samanburður Nýtt skipulag
NEI Eru hugmyndir um byggð skv. skipulaginu hannaðar og útfærðar?
NEI Eru hugmyndir fjármagnaðar?
Úthlutað * Verður miðbæjarlóðum úthlutað eða þær seldar? Úthlutað
Árborg Hver mun kosta gatnagerð? Sigtún Þrf.
Árborg Hver mun kosta bílastæði? Sigtún Þrf.
300–400 milljónir** Hver verður framkvæmdakostnaður Árborgar? O kr.
Óvíst, en a.m.k. 1 ár. Hvað líður langur tími þar til framkvæmdir hefjast? Nokkrar vikur
22.800 fm Hver er stærð Sigtúnsgarðs skv. skipulagi? 23.200 fm.

*Skv. viðtali við formann bæjarráðs. **Mv. gatnagerðargjöld af leyfilegu heildarbyggingarmagni og áætlaðan framkvæmdakostnað.

Mitt mat er að farsælla sé að halda áfram með það verkefni sem unnið hefur verið að síðustu ár, byggja upp miðbæ skv. nýju skipulagi, sem hefur aðdráttarafl og gegnir hlutverki í þjónustu við íbúa. Framkvæmd þar sem kostnaðurinn lendir hjá framkvæmdaaðilum en ekki sveitarsjóði og þegar hefur verið sýnt fram á fjármögnun á. Ég hvet íbúa til að mæta á kjörstað og kjósa með tillögunum!

Ásta Stefánsdóttir, fv. framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar