![Óhapp varð við affermingu á hveititanki Óhapp varð við affermingu á hveititanki](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/20180731_132752.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Glussatjakkur gaf sig þegar verið var að afferma hveititank við Guðnabakarí á Selfossi nú undir hádegið. Mikil mildi var að engin slys urðu á fólki þegar tjakkurinn brast og tankurinn skall með látum í jörðina. Töluverður glussi rann úr tjakknum. Samkvæmt sjónarvottum runnu einhverjir tugir lítra í niðurfall á svæðinu, en líklegt þykir að það endi í Ölfusá. Slökkviliðsmenn á tækjabíl frá Brunavörnum Árnessýslu voru fljótir á vettvang. Beitt var sérstökum ísogsefnum til þess að hindra frekara tjón af völdum glussans. Unnið verður að því að meta hvað skal gera í framhaldinu og hvort gera þurfi frekari ráðstafanir eins og að jarðvegsskipta á svæðinu. Þegar þetta er ritað er kranabíll frá JÁ Verk að hífa tankinn burt og koma honum af vettvangi.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/20180731_120853.jpg?resize=719%2C405&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/20180731_133054.jpg?resize=702%2C395&ssl=1)