![Hótel rýmt vegna smávægilegs bruna Hótel rýmt vegna smávægilegs bruna](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/07/Lögregla.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Lögreglan og slökkvilið Brunavarna Rangárvallasýslu voru kölluð að Hótel Hellu um um 23 þann 30. ágúst vegna lítils háttar bruna. Bruninn hófst að því virðist í viftu á baðherbergi á neðri hæð hótelsins.
Búið var að slökkva eldinn er slökkvilið kom á staðinn. Slökkvilið reykræsti hótelið en töluverður reykur myndaðist við brunann. Engan sakaði.
Hótelið var rýmt samkvæmt áætlun og fengu gestir, sem voru um 90 talsins, inni í íþróttahúsinu á Hellu sem er í nágrenninu. Rýmingin gekk vel að sögn Lögreglunnar. Fljótlega var búið að fá gistingu fyrir alla gestina, sem voru afar rólegir yfir þessu ævintýri, á hótelum í grennd.