![Ásta Stefánsdóttir ráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar Ásta Stefánsdóttir ráðin sveitarstjóri Bláskógabyggðar](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/05/asta_stefansd2.jpg?fit=768%2C569&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/05/asta_stefansd1.jpg?resize=245%2C300&ssl=1)
Á fundi sveitarstjórnar Bláskógabyggðar í gær var samþykkt samhljóða að ráða Ástu Stefánsdóttur sem sveitarstjóra Bláskógabyggðar. Ásta var valin úr hópi 24 umsækjenda en Hagvangur sá um auglýsinga- og ráðningarferlið.
Ásta sem er lögfræðingur að mennt hefur undanfarin átta ár gengt starfi framkvæmdastjóra Sveitarfélagsins Árborgar.