![Blautir og kaldir á Fimmvörðuhálsi Blautir og kaldir á Fimmvörðuhálsi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/03/landsbjorg1.jpg?fit=179%2C134&ssl=1)
Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt vegna tveggja ferðamanna sem halda til í tjaldi á Fimmvörðuhálsi en eru orðnir blautir og kaldir. Mikill vindur og úrkoma hefur verið á svæðinu í nótt og gengur nú á með slydduéljum, en veður fer batnandi. Björgunarsveitafólk er komið upp á Fimmvörðuháls og heldur á svæðið þar sem talið er að ferðamennirnir séu á vélsleðum.
Á sjötta tímanum í morgun var óskað eftir göngufólki af höfuðborgarsvæðinu verður það fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar úr Reykjavík.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.