![Örmagna kona í hlíðum Ingólfsfjalls Örmagna kona í hlíðum Ingólfsfjalls](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/03/landsbjorg1.jpg?fit=179%2C134&ssl=1)
Rétt yfir fimm í gær voru björgunarsveitir frá Selfossi, Þorlákshöfn, Eyrabakka og Hveragerði kallaðar út vegna örmagna konu sem var í sjálfheldu í Ingólfsfjalli.
Það var ekki fyrr en um klukkan sex að björgunarsveitir og lögregla höfðu náð að staðsetja konuna, en hún gat ekki staðsett sig í fjallinu. Konan var efst í stórgrýttu gili í fjallinu og treysti sér ekki til að hreyfa sig. Björgunarsveitarfólk fór upp fjallið úr tveimur áttum með búnað til þess að koma konunni niður fjallið á öruggan hátt.