1.7 C
Selfoss

Áherslur nýs meirihluta í Árborg kynntar

Vinsælast

Nýr meirihluti í Sveitarfélaginu Árborg kynnti málefnasamning sinn í morgun við Húsið á Eyrarbakka. Að meirihlutanum standa Áfram Árborg (Á), Framsókn og óháðir (B), Miðflokkurinn (M), og Samfylkingin (S).

Í upphafi málefnasamningsins segir að Áfram Árborg, Framsókn og óháðir, Miðflokkurinn og Samfylkingin hafi ákveðið að stofna til meirihlutasamstarfs í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborg á grundvelli lýðræðislegrar stjórnsýslu, aukinnar velferðar og átaks í atvinnumálum.

Árborg sé stærsta sveitarfélagið á Suðurlandi og eigi að veita fyrirmyndar þjónustu á sviði menntunar, menningar, velferðar  og stjórnsýslu. Um þennan rekstur ætlar meirihlutinn að standa vörð, hlúa að þeim sem fyrir eru og skapa aðstæður fyrir nýja starfsemi. Brýnt sé að hækka launastig á svæðinu með því að laða að nýja starfsemi og fjölga störfum innan sveitarfélagsins.

Þá verður sett af stað undirbúningur og vinna við að virkja sérstaklega ungt fólk við stjórnun og framtíðarþróun sveitarfélagsins. Unnið verður markvisst að því að virkja viðhorf þeirra og sjónarmið.

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verður 13. júní næstkomandi og mun nýi meirihlutinn taka við í framhaldi af því. Helgi S. Haraldsson, B-lista, verður forseti bæjarstjórnar og Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, formaður bæjarráðs. Samfylkingin verður með formennsku í fræðslunefnd og félagsmálanefnd, Framsókn og óháðir í íþrótta- og menningarnefnd, Áfram Árborg í skipulags- og bygginganefnd og M-listi í framkvæmda- og veitustjórn.
Í málefnasamningnum kemur fram að auglýst verði eftir bæjarstjóra.

Markmið meirihlutans um rekstur sveitarfélagsins eru eftirfarandi:

Fræðslu- og menntamál
Boðið verði upp á leikskólapláss fyrir öll börn í Sveitarfélaginu Árborg frá 12 mánaða aldri og tryggt verði að til staðar verði nægjanlegt framboð leikskólarýmis.
Leik,- grunn-, og tónlistarkennurum verði tryggð viðunandi starfsaðstaða og sjálfstæði þeirra í starfi aukið og stutt verði við endurmenntunarmöguleika starfsfólk.
Systkinaafslættir í leikskólum verði endurskoðaðir.
Móðurmáls- og íslenskukennslu fyrir tvítyngd börn verði efld.
Unnið verði með samstilltum aðgerðum gegn einelti og félagslegri einangrun barna í samfélaginu.
Tölvukostur og upplýsingakerfi skólanna verði bætt með það að markmiði að styðja börn, foreldra og skóla í að takast á við stafrænan veruleika.
Verkmenntun og kennsla í skapandi greinum verði efld.
Sérfræðiþjónusta í grunnskólum Árborgar verði efld.
Opnunartímar og sumarlokanir leikskóla verði endurskoðaðir í samráði við starfsfólk og foreldra.

Atvinnumál
Ráðist verði í átak í atvinnuppbyggingu og ferðaþjónustu, þar sem stuðlað verði að nýsköpun og frumkvöðlastarfi í samstarfi við ferðaþjónustuaðila.
Sveitarfélagið verði markvisst kynnt sem góður valkostur fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir.
Tryggt verði að ætíð sé til staðar sé nægt framboð lóða undir fjölbreytta atvinnustarfsemi.
Mótuð verði atvinnustefna sveitarfélagsins til framtíðar.
Leitað verði leiða til að ljúka við Menningarsalinn á Selfossi í samstarfi við aðra aðila.

Velferðar- og fjölskyldumál
Þrýst verði á ríkisvaldið að tryggt verði að byggð verði næg hjúkrunarrými fyrir aldraða, í takt við íbúaþróun og fyrirsjáanlega þörf á svæðinu.Félagsleg heimaþjónustu verður efld, með það að markmiði að aldraðir geti dvalið lengur heima.
Leitað verði eftir samstarfi við SÁÁ um rekstur göngudeildar í sveitarfélaginu.
Átak verði gert hjá sveitarfélaginu í ráðningu fólks með skerta starfsgetu og atvinnurekendur á svæðinu hvattir til þess sama.
Unnið verði markvisst að því að tryggja framboð á öruggu og ódýru leiguhúsnæði á vegum sveitarfélagsins eða í samstarfi við húsnæðisfélög sem rekin eru án hagnaðarmarkmiða um byggingu og rekstur íbúða fyrir tekjulægri einstaklinga og fjölskyldur. Tryggðar verði lóðir fyrir þær byggingar svo hægt verði að fara í framkvæmdir sem fyrst.
Hraðað verði uppbyggingu og aukið framboð á íbúðum fyrir fatlað fólk.

Íþrótta- og tómstundamál
Mótuð verði framtíðarstefna í samráði við íbúa og áhugamannafélög um áherslur og uppbyggingu á aðstöðu til félagsstarfs, íþróttaiðkunar og annars tómstundastarfs.
Gerð verði framkvæmdaáætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja í öllu sveitarfélaginu.
Tryggt verði að öll börn og unglingar hafi jafna aðgang að íþrótta- og æskulýðsstarfi, óháð efnahag.

Umhverfis- og skipulagsmál
Unnið verði að framtíðarlausn í fráveitumálum sveitarfélagsins.
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Árborgar 2010-2030 verði endurskoðað.
Mótuð verði heildstæð umhverfisstefna sem tekur á umgengni, sorphirðu, samgöngum, notkun vistvænna vara og minni umbúðanotkun.Sorpflokkun verði aukin, hafin söfnun á lífrænum úrgangi og settir upp grenndarstöðvar á nokkrum stöðum í sveitarfélaginu.
Unnið verði að svæðisskipulagi með nágrannasveitarfélögum í þeim tilgangi að kortleggja og laða að atvinnustarfsemi.

Gjaldskrá Selfossveitna verði endurskoðuð með það að markmiði að gæta jafnræðis meðal allra notenda sveitarfélagsins.

Endurskoðað verði fyrirkomulag og aðgengi almenningssamgangna innan sveitarfélagsins.
Þrýst verði áfram á stjórnvöld að ráðast í byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá og tvöföldun þjóðvegarins á milli Hveragerðis og Selfoss.

Stjórnsýsla og fjármál
Auglýst verði staða bæjarstjóra.
Álagningarprósenta fasteignaskatts verði endurmetin og afsláttarreglur endurskoðaðar.
Lækkað verði hlutfall íbúa sem geta farið fram á íbúakosningu um einstök mál. Íbúalýðræði og hverfaráðin verði efld.
Íbúafundir verði haldnir reglubundið til að veita upplýsingar um málefni sveitarfélagsins og gefa íbúum kost á að hafa áhrif á stefnumótun og rekstur bæjarfélagsins.
Sett verði tímasett langtímamarkmið um lækkun skulda. Innleiddir verði bættir verkferlar við eftirfylgni bæjarfulltrúa með rekstrinum.
Útboð og verðkannanir verði almenna reglan við öll innkaup til sveitarfélagsins.
Heimasíða sveitarfélagsins verði efld verulega og rafræn afgreiðsla mála gerð möguleg.
Sveitarfélagið Árborg verði fyrirmyndar sveitarfélag varðandi öryggis- og neyðarmál, og vinni með ríkinu að tryggja öfluga lögreglu og heilbrigðisstofnanir á Suðurlandi. Skýra skal betur í hverju ábyrgð sveitarfélaga vegna almannavarna í héraði felst og hvernig samvinna við ríkisvaldið skuli vera háttað.

Nýjar fréttir