8.9 C
Selfoss
Home Fréttir Færri stöðvaðir fyrir of hraðan akstur

Færri stöðvaðir fyrir of hraðan akstur

0
Færri stöðvaðir fyrir of hraðan akstur

Einungis tólf ökumenn voru stöðvaðir af lögreglunni á Suðurlandi fyrir að aka of hratt í vikunni, sjö í Árnessýslu, tveir í Rangárvallasýslu, tveir í Eldhrauni og einn í Nesjum við Höfn. Þetta eru færri ökumenn en oft áður. Mögulega hafa hækkaðar sektir áhrif til lækkunar ökuhraða en líta þarf yfir lengra tímabil til þess að meta það. Þeir sem kærðir voru voru sumer hverjir á rúmlega 130 km/klst hraða.

Þrír ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur í liðinni viku. Um einn þeirra var tilkynnt, þann 27. maí, þar sem hann ók austur Hellisheiði á miklum hraða með „hazard“ ljósin kveikt og annað framljósið hangandi fram úr stuðara bifreiðarinnar. Sá var stöðvaður við Hveragerði og reyndist ölvaður. Sama dag voru tveir aðrir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur, annar innanbæjar á Selfossi og hinn á Biskupstungnabraut.

Ökumaður fólksbifreiðar sem stöðvaður var vegna aksturs var sviptur ökuréttindum á Suðurlandsvegi við Bolöldu þann 23. maí sl. reyndist undir áhrifum fíkniefna.

Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku. Eitt þeirra var með slysum á fólki þegar bifreið var ekið út frá bifreiðastæði Húsasmiðjunnar við Eyrarveg á Selfossi og í veg fyrir bifreið sem ekið var um Eyraveginn. Önnur bifreiðin valt við áreksturinn. Í öðru tilviki feyktist planki af vörubílspalli á fólksbifreið á Biskupstungnabraut og hlutust nokkrar skemmdir af því án þess þó að slys yrðu á fólki. Einnig valt vörubifreið á Rangárvallavegi, skammt vestan við Keldur.

Um liðna helgi var árlegt motorkross mót á Kirkjubæjarklaustri. Um 200 manns eru talin hafa sótt mótið og gekk mótshaldið vel fyrir sig þrátt fyrir að blautt væri á mótsgestum.

Úr dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.