![Leitað að manni sem féll í Ölfusá í nótt Leitað að manni sem féll í Ölfusá í nótt](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/03/landsbjorg1.jpg?fit=179%2C134&ssl=1)
Laust eftir kl. 3 í nótt fékk lögreglan á Suðurlandi tilkynningu um að maður hefði farið fram af brúnni yfir Ölfusá og hafnað í ánni. Ræstar voru út björgunarsveitir á Suðurlandi og af höfuðborgarsvæðinu ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hópar þessir eru enn við leit á svæðinu. Aðstæður til leitar hafa verið ferkar erfiðar þar sem mikið vatn er í ánni og mjög hvasst er á svæðinu.