![Alþjóðlegi farfugladagurinn haldinn á Hvolsvelli á morgun Alþjóðlegi farfugladagurinn haldinn á Hvolsvelli á morgun](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/05/spoinn2.jpg?fit=374%2C234&ssl=1)
Alþjóðlegi farfugladagurinn er á morgun laugardaginn 12. maí.
Í tilefni dagsins munu Fuglavernd, Náttúrufræðistofnun Íslands, Rannsóknasetur Háskóla
Íslands á Suðurlandi og Katla jarðvangur í samvinnu efna til vettvangsferðar og fræðslu.
Dagskráin hefst kl. 10 á morgun laugardag með fuglaskoðun á varpstöðvum spóans við veiðihus við Eystri-Ranga sem Tómas Grétar Gunnarsson leiðir. kl. 12:00-13:00 verður fjölskyldugrill við Hvol á Hvolsvelli í boði SS. Kl. 13:00 verða síðan ræðsluerindi í Hvoli um spóann. Flutt verða fjögur stutt erindi af okkar helstu vísindamönnum um spóann.
● Varp – Borgný Katrínardóttir líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.
● Vetrarstöðvar – Camilo Carneiro doktorsnemi við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurlandi.
● Farflug – José Augusto Alves nýdoktor við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á
Suðurlandi.
● Vernd – Tómas Grétar Gunnarsson forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla
Íslands á Suðurlandi.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Árið 2018 verður alþjóðlegi farfugladagurinn tileinkaður spóanum á Íslandi. Spóinn er ein af ábyrgðartegundum okkar Íslendinga en hér verpir megnið af Evrópustofninum og líklega fyrirfinnst hvergi þéttara spóavarp. Spóinn hefur vetursetu í Vestur-Afríku en þangað flýgur hann alla jafna beint yfir opið haf án hvíldar.