![Banaslys skammt austan við Vík í Mýrdal Banaslys skammt austan við Vík í Mýrdal](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/10/kertaljos_andlat.jpg?fit=768%2C432&ssl=1)
Laust fyrir kl 20 í gærkvöld varð banaslys á þjóðvegi 1 skammt austan við Vík í Mýrdal við svokallaðan Kötlugarð. Þrír voru í bifreið sem fór nokkrar veltur. Ökumaður bifreiðarinnar var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild. Hann var úrskurðaður látinn í nótt. Tveir farþegar voru í bifreiðinni sem slösuðust minna, en voru fluttir með sjúkrabifreiðum á slysadeild í Reykjavík.
Á facebook síðu lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að svo virðist sem allir hafi verið í öryggisbelti þegar slysið varð. Þar segir einnig að tildrög slyssins séu ókunn og að þau séu til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi, ásamt tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem einnig kom á vettvang.
Mikill viðbúnaður var á vettvangi vegna slyssins frá lögreglu, slökkviliði í Vík, sjúkraflutningum á Suðurlandi og Landhelgisgæslunni.
Það sem af er ári hafa fjórir einstaklingar látið lífið í þremur umferðarslysum í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi.