Sjálfstæðisfélagið Ægir hefur samþykkt framboðslista Sjálfstæðisflokks fyrir komandi sveitastjórnarkosningar í Sveitarfélaginu Ölfusi þann 26. maí nk. Í tilkynningu segir að á listanum sé fjölbreyttur hópur fólks með víðtæka þekkingu og reynslu úr ólíkum áttum. Mikil endurnýjun sé á listanum og einnig sé þar að finna reynslumikla einstaklinga á sviði sveitastjórnarmála. Á listanum eru frambjóðendur bæði úr Þorlákshöfn og dreifbýli Ölfuss. Margir eru fæddir og uppaldir í sveitarfélaginu en einnig eru í framboði einstaklingar sem flutt hafa í sveitarfélagið á síðustu árum.
Listann skipa:
- Gestur Þór Kristjánsson, 45 ára, húsasmíðameistari
- Rakel Sveinsdóttir, 47 ára, atvinnurekandi
- Grétar Ingi Erlendsson, 34 ára, meðeigandi og markaðs-/sölustjóri
- Steinar Lúðvíksson, 34 ára, hópstjóri og ráðgjafi
- Kristín Magnúsdóttir, 41 árs, fjármálastjóri
- Sesselía Dan Róbertsdóttir, 19 ára, nemi
- Eiríkur Vignir Pálsson, 42 ára, byggingafræðingur
- Sigríður Vilhjálmsdóttir, 34 ára, lögmaður
- Björn Kjartansson, 50 ára, framkvæmdastjóri
- Elsa Jóna Stefánsdóttir, 36 ára, þroskaþjálfi
- Írena Björk Gestsdóttir, 20 ára, nemi
- Sigurður Bjarnason, 73 ára, skipstjóri
- Sigríður Lára Ásbergsdóttir, 54 ára, sérfræðingur og atvinnurekandi
- Einar Sigurðsson, 75 ára, athafnamaður
Á næstu dögum og vikum verður listinn kynntur nánar auk þess sem opnir málefnafundir verða haldnir þar sem öllum íbúum sveitarfélagsins gefst kostur á að koma hugmyndum sínum á framfæri.