Á félagsfundi Kára, félags Sjálfstæðismanna í Rangárþingi eystra, sem haldinn var síðastlinn fimmtudag, var D-listi Sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna vegna komandi sveitarstjórnarkosninga samþykktur. Skoðanakönnun á meðal félagsmanna Kára var haldin og tók uppstillingarnefnd niðurstöður hennar og lagði fram listann í heild sinni. Jafnt kynjahlutfall er á listanum, sjö konur og sjö karlar. Efsta sætið skipar Anton Kári Halldórsson byggingafulltrúi og í öðru sæti er Elín Fríða Sigurðardóttir viðskiptafræðingur. Þá var samþykkt að Anton Kári verði sveitarstjóraefni listans.
- Anton Kári Halldórsson
- Elín Fríða Sigurðardóttir
- Guðmundur Viðarsson
- Harpa Mjöll Kjartansdóttir
- Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir
- Baldur Ólafsson
- Esther Sigurpálsdóttir
- Kristján Fr. Kristjánsson
- Ingveldur Anna Sigurðardóttir
- Bragi Ágúst Lárusson
- Ragnheiður Jónsdóttir
- Páll Eggertsson
- Heiða Björg Scheving
- Svavar Hauksson