3.4 C
Selfoss

Skemmtileg gjöf frá fyrrum nemanda

Vinsælast

Fjölbrautaskóla Suðurlands barst nýlega skemmtileg gjöf frá Svíþjóð. Þar var á ferðinni doktorsritgerð Jóns Þorkels Einarssonar, en Jón Þorkell útskrifaðist frá FSu á haustönn 1995 af eðlisfræði- og náttúrufræðibrautum. Jón Þorkell stundaði nám í læknisfræði við HÍ, lauk sérnámi í lyflækningum við LSH og fór svo utan til framhaldsnáms í Svíþjóð í lyf- og gigtarlækningum. Hann starfar nú sem yfirlæknir í gigtarmóttöku við háskólasjúkrahúsið í Lundi.

Ritgerðin fjallar um rannsókn á sjúklingum með liðagigt þar sem skoðuð voru áhrif langvinna sjúkdómshléa á sjúkdóminn. Jón Þorkell varði nú í janúar doktorsverkefnið sitt við Háskólann í Lundi.

Jón Þorkell segir að hann hafi gert sitt fyrsta rannsóknarverkefni í FSu: „Mitt fyrsta rannsóknarverkefni vann ég í FSu. Við sendum rannsókn í gegnum umhverfisráðuneytið á Young Europeans’ Environmental Research (YEER) ráðstefnuna í Köln 1994. Rannsóknin fjallaði um brennisteinsmengun við háhitasvæði á Íslandi. Sigurður Ragnarsson (stormur) var mentor. Með í hópnum voru Pálmar Ingi Guðnason (efnafræðingur) og Dr. Jón Hallsteinn Hallsson dósent við Landbúnaðarháskólann. Svo fórum við til Kölnar þar sem einhverskonar keppni fór fram.”

Nýjar fréttir