![Miðflokkurinn býður fram á Suðurlandi Miðflokkurinn býður fram á Suðurlandi](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2018/02/midflokkurinn2.jpg?fit=768%2C523&ssl=1)
Stjórn Miðflokksfélags Suðurkjördæmis (MFS) hefur tekið ákvörðun um að bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum sem haldnar verða laugardaginn 26. maí nk. Þetta kemur fram í tilkynningu sem stjórn félagsins sendi frá sér 18. febrúar sl.
Þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér á framboðslista flokksins í sínu sveitarfélagi geta sent eftirfarandi upplýsingar á sudur@midflokkurinn.is: nafn, heimilisfang, starfsheiti, símanúmer og netfang ásamt því sæti sem óskað er eftir. Lokafrestur til að skila inn framboðum er kl. 12:00, laugardaginn 3. mars nk.
Undir tilkynninguna rita fyrir hönd Miðflokksfélags Suðurkjördæmis, Einar G. Harðarson formaður (s. 662 5599) og Sigrún Gísladóttir Bates varaformaður (896 4509).