![Opið um Þrengslin en Hellisheiði lokuð Opið um Þrengslin en Hellisheiði lokuð](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/10/vegagerd.jpg?fit=288%2C184&ssl=1)
Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að Hellisheiði er enn lokuð en Þrengslin eru opin. Verið er að opna og hreinsa vegi á Suðurlandi, víða er snjóþekja en sums staðar er enn þæfingur eða jafnvel þungfært. Mosfellsheiðin er ennþá ófær og Hellisheiðin lokuð.
Uppfært kl. kl. 10:39 :
Nú er búið að opna Hellisheiði til austurs en enn er unnið á veginum í akstursstefnu til vesturs.