Kveikt verðu í áramótabrennum á eftirfarandi stöðum í Sveitarfélaginu Árborg þann 31. desember nk. ef veður leyfir. Sveitarfélagið hvetur alla til að fara varlega kringum brennurnar og minnir á mikilvægi þess að allir hafi öryggisgleraugu sem eru að skjóta upp flugeldum.
Brennur eru á eftirfarandi stöðum:
- Á gámasvæðinu, Víkurheiði á Selfossi kl. 16:30
- Við Hafnarbrú á Eyrarbakka kl. 20:00
- Við Arnhólma á Stokkseyri kl. 20:00
Fólk er hvatt til að fylgjast með fréttum ef veðurspáin lítur illa út.