Á morgun fimmtudaginn 7. desember, opnar Sláturfélag Suðurlands nýja búvöruverslun, Búvörur SS, að Ormsvelli 4 á Hvolsvelli. Þar verður boðið upp á fjölbreytt vöruúrval af vörum fyrir bændur og hestamenn. Afgreiðslutími verslunarinnar verður alla virka daga kl. 9–17.
Með opnuninni vill SS tryggja viðskiptavinum sínum og eigendum Sláturfélags Suðurlands gott aðgengi að vöruúrvali félagsins.
Formleg opnun verður á fimmtudaginn frá kl. 15:00 til kl. 19:00. Þar verða tilboð á völdum framleiðsluvörum SS. Allir eru velkomnir að líta við og fagna þessum tímamótum með starfsfólki Búvara SS.