Á morgun, laugardaginn 2. desember, kl. 20:30 verða jólatónleikarnir Jólaveisla 2017 haldnir í íþróttahúsinu á Hvolsvelli. Þar verður flutt fjölbreytt jóladagskrá fyrir alla aldurshópa. Allur ágóði af tónleikunum rennur til dvalarheimilanna Lundar og Kirkjuhvols.
Á tónleikunum munu koma fram Páll Rósinkranz, Gísli Stefánsson, Maríanna Másdóttir, Fríða Hansen, Herdís Rútsdóttir, Magnús Kjartan Eyjólfsson, Sæbjörg Eva Hlynsdóttir, Oddný Lilja Birgisdóttir, Barnakór Hvolsskóla og Öðlingarnir. Hljómsveit tónleikanna skipa Stefán Ingimar Þórhallsson, Jón Örvar Bjarnason, Sveinn Pálsson og Helgi Georgsson.