![Jólafjör og kveikt á jólatrénu hjá VISS í fyrramálið Jólafjör og kveikt á jólatrénu hjá VISS í fyrramálið](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/11/viss_jolasveinar2.jpg?fit=768%2C508&ssl=1)
Á morgun föstudaginn 1. desember kl. 11:00 verður fjör á VISS, vinnu- og hæfingarstöð, Gagnheiði 39 á Selfossi, en þá verður hafin sala á jólavörum. Áður en verslunun verður opnuð verður kveikt á jólatré sem Rotaryklúbbur Selfoss gefur VISS. Þennan dag verður kaffihúsastemning og allir velkomnir að koma og þiggja kaffi og kíkja á flottar vörur. Hjá VISS er fullt af fallegum skrautmunum og nytjahlutum úr ýmsum efnivið en á VISS er lögð áhersla á endurvinnslu hráefnis.
Versluninn hjá VISS í Gagnheiðinni er opin alla virka daga frá kl. 8:30 til kl. 16:00.