![Hugmyndir um alþjóðaflugvöll í Árborg Hugmyndir um alþjóðaflugvöll í Árborg](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/04/arborg_hringtorg.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Á fundi bæjarráðs Árborgar í síðustu viku voru ræddar hugmyndir sem fram hafa komið um að byggja alþjóðaflugvöll á landsvæðinu milli Selfoss og Stokkseyrar. Rætt var um rannsóknir sem þyrfti að gera til að meta hvort hugmyndin væri raunhæf. Á fundinn mættu Andri Björgvin Arnþórsson, Sigtryggur Arnþórsson og Páll Heiðar Pálsson, ásamt Páli Bjarnasyni frá verkfræðistofunni Eflu. Framkvæmdastjóra sveitarfélagsins var falið að koma á starfshópi um verkefnið. Um 90% erlendra ferðamanna sem koma til landsins fara um Suðurland og því þykir áhugavert að kanna möguleika á flugvelli við Selfoss.