![Sagnaþættir Guðfinnu Ragnarsdóttur Sagnaþættir Guðfinnu Ragnarsdóttur](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/11/sagnathattir2.jpg?fit=768%2C478&ssl=1)
Sagnaþættir Guðfinnu heitir ný bók sem kemur út hjá Bókaútgáfunni Sæmundi. Höfundurinn Guðfinna Ragnarsdóttir er ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins og fyrrverandi kennari.
Í Sagnaþáttum Guðfinnu kynnumst við lífi alþýðufólks víðsvegar um landið. Hér eru ættarsögur úr Dölunum, frásögn af góðmenninu Skapta lækni í Reykjavík og harmþrungin örlög Guðnýjar skáldkonu á Klömbrum í Aðaldal. Skeiðamenn af Bernhöftsætt birtast okkur ljóslifandi og Óli Skans er dreginn fram í dagsljósið.
Sögusvið þáttanna er jafnt fyrir norðan og sunnan en teygir sig út fyrir landsteinana í tveimur síðustu þáttunum.
Hér eru sögur úr ættanna kynlega blandi framreiddar af sagnakonunni Guðfinnu sem hefur frá blautu barnsbeini lagt sig eftir fróðleik og örlögum genginna kynslóða.