![Dagný Brynjars með þrjú mörk fyrir Ísland Dagný Brynjars með þrjú mörk fyrir Ísland](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/10/dagny2.jpg?fit=768%2C581&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/10/dagny1.jpg?resize=272%2C300&ssl=1)
Kvennalandslið Íslands sýndi magnaða frammistöðu í Wiesbaden í Þýskalandi í liðinni viku þegar það vann 3-2 sigur. Ísland hafði ekki skorað gegn Þýskalandi í 30 ár áður en Rangæingurinn Dagný Brynjarsdóttir braut ísinn í leiknum með marki af stuttu færi. Þýskaland jafnaði fyrir hálfleik en Elín Metta Jensen bætti við marki í byrjun seinni hálfleiks. Dagný skoraði svo sitt annað mark og jók forystu Íslands í 3-1. Þýskaland náði að minnka muninn í 3:2 í lokin.
Ísland lék svo við Tékkland í Znojmo í gær. Þar kom Dagný Íslandi yfir á 44. mín. Tékkar náðu að jafna á 63. mín og 1:1 varð niðurstaðan. Frábær árangur hjá Dagnýju en hún skoraði þrjú mörk í leikjunum tveimur.