Kaffi krús á Selfossi átti á dögunum 25 ára afmæli. Það voru þau Anna Árnadóttir og Guðmundur Sigurðsson sem opnuðu staðinn 16. október 1992 og var það jafnframt fyrsta kaffihúsið sem opnaði utan höfuðborgarsvæðisins. Í dag er Kaffi krús einn vinsælasti veitingastaður Suðurlands. Í tilefni afmælisins verða ýmis tilboð alla vikuna.