-1.6 C
Selfoss

Leikfélag Selfoss æfir „Vertu svona kona“

Vinsælast

Leikfélag Selfoss æfir um þessar leikritið „Vertu svona kona” í leikstjórn Guðfinnu Gunnarsdóttur. Í verkinu er viðfangsefnið konan í sögunni og sagan í konunni. Leikritið er sameiginleg sköpun hópsins og leikstjórans þar sem inn í fléttast textar eftir Margaret Atwood. Öll tónlist og hljóðmynd er í höndum Kristjönu Stefánsdóttur. Stefnt er að frumsýningu 3. nóvember nk. og að sýningar verði átta talsins.

Alls taka tólf leikarar þátt í sýningunni ásamt frábæru tækniteymi. Fyrir um það bil þremur vikum síðan kom hópurinn saman, deildi reynslusögum, lygasögum, ástarsögum og gamansögum. Það hefur svo verið í höndum Guðfinnu leikstjóra og Jónheiðar aðstoðarleikstjóra að smella saman handriti. Sýningin er því einlæg, persónuleg, falleg, ljót, fyndin og skemmtileg. Áhorfendur eiga eftir að flakka allan tilfinningaskalann og hafa gaman af. Fólk er hvatt til að fylgjast með á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #vertusvonakona og minnum á snapchat aðganginn “leik-selfoss”.

Nýjar fréttir