Félagar í Rótarýklúbbi Selfoss góðursettu í síðustu viku rifsberja- og sólberjarunna á opnu svæði sunnan við Sílatjörn á Selfossi. Runnarnir munu væntanlega gleðja íbúa á komandi árum með berjum að hausti sem hverjum og einum verður heimilt að tína. Verkið var unnið í samstarfi við umhverfisdeild sveitarfélagsins. Rótarýfélagar hafa haft þann háttinn á í mörg ár að hefja starfsárið á gróðursetningu. Lengi var plantað í Laugardælaeyju, en síðustu ár hefur verið plantað í Sigtúnsgarði og opin svæði við Suðurhóla.
Rótarýfélagar gróðursettu á Selfossi
![grodursetning_rotary](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/09/grodursetning_rotary.jpg?resize=650%2C366&ssl=1)