![Ný aðstaða fyrir ferðamenn í Varmahlíð undir Eyjafjöllum Ný aðstaða fyrir ferðamenn í Varmahlíð undir Eyjafjöllum](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/09/varmahlid2.jpg?fit=768%2C487&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/09/varmahlid1.jpg?resize=225%2C300&ssl=1)
Í sumar opnuðu hjónin Anna Birna Þráinsdóttir og Sigurður Jakob Jónsson í Varmahlíð undir Eyjafjöllum nýja aðstöðu fyrir ferðamenn. Um er að ræða 10 studíóíbúðir 2–4 manna með eldunaraðstöðu o.þ.h. Mikið hefur verið að gera í sumar hjá þeim hjónum í Varmahlíð og nær fullbókað. Í tilefni þessa færði Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri þeim hjónum viðurkenningarskjöld f.h. sveitarstjórnar Rangárþings eystra.