![Nýr skólastjóri í Vallaskóla í vetur Nýr skólastjóri í Vallaskóla í vetur](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/09/torvaldur_gunnarsson2.jpg?fit=768%2C537&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/09/torvaldur_gunnarsson1.jpg?resize=233%2C300&ssl=1)
Þorvaldur Halldór Gunnarsson hefur verið ráðinn skólastjóri Vallaskóla til eins árs. Tekur hann við starfinu af Guðbjarti Ólasyni sem fer í námsleyfi skólaárið 2017–2018. Þá hefur Einar Guðmundsson sagt starfi sínu lausu sem aðstoðarskólastjóri. Við hans starfi tekur Sigurborg Kjartansdóttir tímabundið í vetur. Þá má geta þess að Hildur Bjargmundsdóttir hefur verið ráðin í starf deildarstjóra.