![Smíðuðu rafgítara á Hvolsvelli Smíðuðu rafgítara á Hvolsvelli](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/gitarar2.jpg?fit=768%2C541&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/gitarar1.jpg?resize=1000%2C1333&ssl=1)
Nýlokið er smíðanámskeiði á Hvolsvelli þar sem nokkrir strákar á aldrinum 13 til 60+ breyttu planka í prúðan rafgítar. Gunnar Örn Sigurðsson gítarsmiður úr Reykjavík var leiðbeinandi strákanna og fórst vel úr hendi enda vanur maður á ferð.
„Þetta var gríðarlega skemmtilegt og ekki leiðinlegt að spila á hljóðfæri sem maður hefur sjálfur búið til. Smíðaðir voru fjórir Stratocaster gítarar og tveir Telecaster og smíðaði Gunnar sjálfur annan af þeim,“ sagði Haraldur Konráðsson, einn af þátttakendum á námskeiðinu.
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/08/gitarar3.jpg?resize=1000%2C1146&ssl=1)
Námskeiðið hófst í vikunni eftir verslunarmannahelgi og stóð yfir í tvær vikur.