-7.2 C
Selfoss

Skyrgerðin í Hveragerði færir úr kvíarnar

Vinsælast

Mikið líf hefur verið í Skyrgerðinni í Hveragerði undanfarið og starfsemin verið að eflast og aukast. Um liðna helgi voru þar tvennir tónleikar, veislur og fleira. Elfa Dögg Þórðardóttir athafnakona keypti gamla Þinghúsið og Skyrgerðina í desember 2015 með það í huga að endurvekja hlutverk hússins, glæða það lífi og endurgera Skyrgerðina. Hugmyndin var að gera þessum ríka þætti matar- og menningarsögu svæðisins góð skil. Framkvæmdir hafa staðið yfir í húsinu síðan þá.

Fyrsti áfanginn var opnaður í fyrra, Café og Bístró á jarðhæðinni, og á efri hæðinni opnaði á sama tíma vandað gistiheimili. Um páskana opnaði svo síðasti hlutinn eða endurgerð Skyrgerðarinnar sjálfrar og menningarsalurinn þar sem þinghald Ölfus og Hvergerðinga fór fram á síðustu öld en þar er nú aðal veitingasalur Skyrgerðarinnar.

Skyrgerðin var fyrst opnuð í Hveragerði í sama húsi árið 1930. Húsið sem var reist sem þinghús héraðsins og fyrsta skyrgerð landsins var eitt það fyrsta sem reist var í Hveragerði og á sér langa og mikla sögu sem tengist bænum og bæjarbúum sterkum böndum. Ölfushreppur byggði Þinghúsið í Hvergerði árið 1930 og Mjólkurbú Ölfusinga byggði skyrgerð á jarðhæð hússins á sama tíma. Húsið var teiknað af Guðjóni Samúelssyni húsasmíðameistara ríkisins sem teiknaði margar af fallegustu byggingum landsins. Í Skyrgerðinni var framleitt skyr sem var ein helsta söluvara Mjólkurbúsins. Einnig var þar fyrsta framleiðsla á jógúrti hér á landi sem var selt í glerflöskum og kallað heilsumjólk.

Allt frá því að húsið var byggt hefur það verið eins konar hjarta bæjarins með þinghald, matargerð og menningu sem miðju. Frá miðri síðustu öld var hótel- og veitingarekstur í húsinu og þinghúsið nokkurs konar menningarsetur Hvergerðinga og á tímabili einn aðal samkomustaðurinn. Þar voru leiksýningar, bíósýningar, brúðkaup, dansiböll og tónleikar landsfrægra listamanna.

Elfa Dögg hefur um áraraðir starfað í ferðaþjónustu í bænum en hún keypti gistiheimilið Frost & funa árið 2012. Því hefur hún stýrt af myndarskap frá þeim degi, stækkaði það strax árið 2013 og bætti þar að auki við veitingastaðnum Varmá árið 2014 en það er eitt vinsælasta veitingahús Suðurlands.

„Við ætlum að sýna gestunum okkar hvernig skyr er framleitt og leyfa því að smakka. Þannig er þetta sögu- og matartengd ferðaþjónusta,” segir Elfa Dögg.
Erlendur Eiríksson leikari og matreiðslumeistari hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Skyrgerðarinnar. „Segja má að styrkleikar hans séu að fullu nýttir því heimsókn í Skyrgerðina á að vera í senn upplifun fyrir hug, hönd og bragðlauka.
Sögu hússins sem ein elsta skyrgerð landsins verður haldið á lofti og framleiðsla á gamaldags pokaskyri er þegar hafin í húsinu að nýju. Byggð var skyrgerð í gömlum stíl inn í miðju húsinu og notast er við mjólk beint frá bænum Hvammi sem er síðasta kúabúið í Ölfusi, í framleiðsluna. Nú geta gestir komið og fylgst með hvernig skyr er búið til, fengið fræðslu um skyrgerð og sögu þess ásamt því að smakka muninn á gamaldags skyri og skyrinu eins og það er gert í dag.“

Nýjar fréttir