3.9 C
Selfoss

Umhverfisverðlaun Árborgar 2017 afhent

Vinsælast

Yngsti og elsti íbúi í Hjalladæl, Guðbjörg Kristín Víglundsdóttir og Jóhann Jóhannsson, ásamt Söndru Dís Hafþórsdóttur, bæjarfulltrúa.

Um liðna helgi var tilkynnt að Hjalladæl á Eyrarbakka væri fallegasta gatan í Árborg 2017. Íbúar við götun afhjúpuðu skilti laugardaginn 12. ágúst sl. og við það tækifæri færði Sandra Dís Hafþórsdóttir bæjarfulltrúi þeim blómvönd fyrir hönd sveitarfélagsins.

Fallegasti garðurinn í sveitarfélaginnu var valinn garður þeirra Stefáns Péturssonar og Drafnar Jónsdóttur að Dverghólum 17 á Selfossi.

Snyrtilegasta stofnunin var valin Selfosskirkja.

Nýjar fréttir