Eldfjallamiðstöðin Lava sem opnaði á Hvolsvelli í síðasta mánuði hefur fengið frábærar viðtökur. Að sögn Ásbjörns Björgvinssonar, markaðs- og sölustjóra, hefur verið mikið rennerí gesta, bæði íslenskra og erlendra frá því hún opnaði.
„Bæði Lava og veitingastaðurinn Katla mathús hafa fengið stórkostleg ummæli á Trip Advisor. Gestirnir hafa verið að upplifa þetta mjög sterkt. Við erum mjög þakklát fyrir það,“ segir Ásbjörn.