Kvennalandsliðið í knattspyrnu undirbýr sig þessa dagana fyrir EM sem haldið verður í Hollandi dagana 16. júlí til 6. ágúst. Landsliðið dvaldi á Selfossi í æfingabúðum um liðna helgi og æfði við frábærar aðstæður á Selfossvelli.
Eftir æfingu á föstudag var iðkendum frá Selfossi boðið að hitta stelpurnar og fá eiginhandaráritanir og myndir teknar af sér með landsliðinu. Fjölmenni mætti og hitti stelpurnar sem gáfu sér góðan tíma í að spjalla og árita hitt og þetta.
Lokaspretturinn stendur nú yfir og stutt er í að EM–veislan hjá stelpunum hefjist. Fyrsti leikur Íslands er gegn Frakklandi 18. júlí.