3.9 C
Selfoss

Ferðamaður lést í umferðarslysi

Vinsælast

Þýskur karlmaður, ferðamaður á sjötugsaldri, sem fluttur var á sjúkrahús í Reykjavík eftir að bifreið hans og hjólhýsi sem hún dró fuku út af Suðurlandsvegi við Freysnes fimmtudaginn 1. júní síðastliðinn er látinn. Kona hans sem einnig var í bílnum slasaðist minna og hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi. Á heimasíður lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að slysið, og tildrög þess, sé til rannsóknar og að ekki sé unnt að veita upplýsingar um nafn hins látna að svo stöddu.

Nýjar fréttir

JÓLAHÚFA GUMMA LITLA

Jólahugleiðing

Ævintýri á Jólaey