![Ferðamaður á reiðhjóli lést Ferðamaður á reiðhjóli lést](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/01/logregla3-4.jpg?fit=768%2C512&ssl=1)
Ítalskur ferðamaður á þrítugsaldri, sem fannst meðvitundarlaus á Nesjavallavegi eftir miðjan dag sl. mánudag, hefur verið úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í Reykjavík. Maðurinn virðist hafa fallið af reiðhjóli sínu á leið sinni um Nesjavallaveg vestan Dyrafjalla og hlotið við það alvarlega höfuðáverka.
Lögregla óskar þess að þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir mannsins um Nesjavallaveg hafi samband í síma 444 2000 eða í tölvupósti á netfanginu sudurland@logreglan.is. Á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að ekki sé unnt að gefa upplýsingar um nafn hans að svo stöddu.