![Mugison í Hvíta húsinu á miðvikudaginn Mugison í Hvíta húsinu á miðvikudaginn](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/05/mugison1.jpg?fit=640%2C486&ssl=1)
![](https://i0.wp.com/www.dfs.is/wp-content/uploads/2017/05/mugison-2.jpg?resize=200%2C300&ssl=1)
Mugison verður með tónleika í Hvítahúsinu miðvikudagskvöldið 24. maí næstkomandi. Tónleikarnir eru partur af tónleikaröð sem Mugison er með, en hún samanstendur af 9 tónleikum víðs vegar um landið. Mugison og hljómsveit spiluðu á alltof fáum tónleikum þegar þau fylgdu eftir síðustu plötu kappans, Enjoy, fyrir síðustu jól. Var það mál manna og kvenna að hljómsveitin hafi aldrei hljómað betur. Rósa Sveinsdóttir bættist í hópinn í fyrra og spilar á saxafón. Þá hafa þau Tobbi og Rósa tekið upp á því að radda eins og englakór í fallegu lögunum – og Addi og Guðni halda ballestinni eins og sannir skriðdrekar. Mugison er þekktur fyrir kraftmikla og einlæga sviðsframkomu – allt er lagt í sölurnar á hverjum einustu tónleikum. Þetta er einstakt tækifæri til þess að upplifa tónlist sem spannar allan tilfinningaskalann. Miðasala á Tix.is.